• Baugakór 38
  • 203 Kópavogur
  • Opnunartími skrifstofu 07:45 - 15:30
  • Sími 570 4950
  • Dægradvöl 570 4959
  • Fax 570 4951

Hörðuvallaskóli

Maí 2012
S M Þ M F F L
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2

Sumarnámskeið í Kópavogi

16 May 2012

Á sumarvef Kópavogs má finna margvísleg og fjölbreytt sumarnámskeið fyrir börn á aldrinum 6 til 16 ára. Tengill á sumarvefinn er hér.

Við enda skólalóðarinnar verða skólagarðar í sumar. Hér eru nánari upplýsingar um skólagarðana.

 

2. bekkur heimsækir Alþingi

14 May 2012

altingi_2_bekur_1

Mánudaginn 14. maí fór 2. bekkur í heimsókn á Alþingi. Nemendur fengu leiðsögn um Alþingishúsið og fræðslu um Alþingi, sáu m.a. málverk af þjóðfundinum 1851,  fóru upp á þingpallana og sáu margt fleira merkilegt. Nemendur skoðuðu styttuna af Jóni Sigurðssyni og Alþingisgarðinn. Eftir heimsóknina var komið við í Ráðhúsi Reykjavíkur og endað í Hljómskálagarðinum þar sem börnin skemmtu sér vel. Þetta var ánægjuleg og fróðleg ferð og allir stóðu sig vel.

altingi_2bekk_2

Last Updated on Monday, 14 May 2012 14:39
 

Frá foreldrafélaginu

07 May 2012

Aðalfundur foreldrafélagsins er í kvöld mánudaginn 7. maí kl. 20:00 í sal skólans. Dagskrá fundarins eru venjuleg aðalfundarstörf. Kosið verður í stjórn foreldrafélagsins og tekin ákvörðun um félagsgjöld fyrir komandi skólaár.

Allir foreldrar barna í Hörðuvallaskóla eiga rétt á setu á aðalfundi og því skorar stjórn foreldrafélagsins á alla foreldra að mæta í kvöld.

Boðið verður upp á léttar veitingar.

Last Updated on Monday, 07 May 2012 11:22